|
Nýr metsölulisti - Sumarfríum að ljúka |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Tuesday, 31 August 2010 10:05 |
|
Það er farið að hausta og skólar landsins aftur farnir að fyllast af frísku fólki á ný. Umferðin á morgnana er farin að þyngjast og er það fyrsta merki þess að haustið er komið. Með haustinu fara starfsmenn líka að mæta til vinnu á ný eftir sumarfrí og það á ekki síst við hér á skrifstofu félagsins. Fyrsta mál á dagskrá er nýr metsölulisti fyrir tímabilið 16. - 18. ágúst. Smellið hér til að sjá nýjasta metsölulistann.
Að þessu sinni er það Camilla Läckberg sem vermir efsta sætið með bók sína Vitavörðurinn. Engan skyldi undra efsta sæti uppsafnaða listans fyrir árið en þar situr Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis sem fastast og hefur gert síðan skýrslan kom út.
Kíkið endilega á nýja listann en þar er einnig hægt að skoða gamla lista frá þessu ári. Njótið vel. |
|
|
Nýr metsölulisti - ný bók í efsta sæti |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Wednesday, 26 May 2010 11:38 |
|
Þá hefur nýr metsölulisti verið kynntur hér á síðunni. Smellið hér til að kíkja á nýjustu listana!! Undanfarna tvo metsölulista hefur Rannsóknarskýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis vermt toppsætið en að þessu sinni nær bók Styrmis Gunnarssonar, Hrunadans og horfið fé, að velta skýrslunni niður í annað sæti. |
|
Nýr metsölulisti |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Wednesday, 12 May 2010 13:48 |
|
Birtur hefur verið nýr metsölulisti fyrir tímabilið 24. apríl - 9. maí 2010 ásamt uppsöfnuðum metsölulista fyrir árið 2010. Nýju listana sem og alla þá sem birtir hafa verið á þessu ári má nálgast HÉR!!!
Nú höfum við lokað bókamarkaðnum á Egilsstöðum sem haldinn var í ár í fyrsta sinn. Móttökur voru hreint út sagt frábærar og færum við öllum þeim sem lögðu leið sína á markaðinn í ár kærar þakkir og vonumst til að sjá sem flesta að ári. |
|
Veitt úr skólasafnasjóði |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Sunday, 02 May 2010 21:10 |
Í dag voru 10 grunnskólum á landinu veittur styrkur úr nýstofnuðum Skólasafnasjóði. Hver skóli fékk 30 þúsund krónu styrk til bókakaupa fyrir bókasöfnin í skólunum. Dregið var um hvaða skólar fengju þennan styrk á Rás 2 í dag og voru það Barnaskóli Norðfjarðar, Brekkubæjarskóli á Akranesi, Brekkuskóli á Akureyri, Grunnskólinn í Borgarnesi, Grunnskóli Bolungarvíkur, Lundarskóli á Akureyri, Lækjarskóli í Hafnarfirði, Melaskóli í Reykjavík, Myllubakkaskóli í Reykjanesbæ og Öskjuhlíðarskóli í Reykjavík sem hlutu styrk að þessu sinni. Félag íslenskra bókaútgefenda óskar þessum skólum til hamingju með styrkinn.
|
|
|
|
|
|
|
Page 1 of 9 |