Upplýsingar
Bókmenntaverðlaunin
Innskráning
Innskráðir félagar
| Reglugerð um verðlaun |
|
Bækur sem útgefendur óska að leggja fram vegna tilnefninga til Íslensku bókmenntaverðlaunanna þarf að tilkynna og skila til skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda á tímabilinu 5.-30. október nk. Gjald fyrir framlagðar bækur er kr. 25.000, - nema fyrir barna- og unglingabækur, kr. 15.000,-. Skila þarf þremur eintökum af framlögðum verkum og má eins á fyrsta stigi leggja fram handrit eða prófarkir. Ekki er heimilt að leggja fram einstaka bók úr bókaflokki nema um sé að ræða algerlega sjálfstætt verk í sömu röð bóka. Taka skal fram við tilkynningu hvort um er að ræða:
a) Frumsamin, íslensk skáldverk, laust mál eða ljóð, fyrir alla aldursflokka, - eða
Tíu athyglisverðustu bækur ársins, fimm úr hvorum flokki, eru valdar af þremur tilskipuðum dómurum um mánaðamótin nóv./des. samkvæmt reglum um verðlaunin. Þriggja manna dómnefnd velur síðan eina bók úr hvorum flokki til verðlauna sem forseti Íslands afhendir eigi síðar en 15. febrúar næsta ár.
Skrifstofa Félags íslenskra bókaútgefenda er á Barónsstíg 5, 101 Reykjavík, sími 511-8020, fax 511-5020 og netfang This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it |