Skráning í Bókatíðindi 2009

Félag íslenskra bókaútgefenda mun að venju gefa út í nóvember kynningarrit um íslenskar bækur, Bókatíðindi, sem dreift er á öll heimili á landinu, auk þess sem bókaverslanir nota ritið við sölustarfsemi sína og bókasöfn við upplýsingar og innkaup. Útgáfudagur er  fyrirhugaður í  2. viku  nóvember 2009 og fer ritið þá strax í dreifingu. Hér á eftir fylgja nánari upplýsingar og leiðbeiningar um kynningar og auglýsingar í Bókatíðindum 2009.

 

BÓKATÍÐINDI 2009

Eins og áður verða  EINGÖNGU birtar kynningar á nýjum bókum í Bókatíðindum, þ.e. bókum með nýju ISBN númeri. Að öðru leyti verða Bókatíðindi 2009 með sama sniði og  fyrri ár, brotið 16,5x24 cm, fjórir dálkar á síðu, dálkbreidd 3,4 cm.

Bókaflokkar eru fyrirhugaðir 9 eins og áður og verða þessir: Íslenskar barna- og unglingabækur, Þýddar barna- og unglingabækur, Íslensk skáldverk, Þýdd skáldverk, Ljóð, Fræði og bækur almenns efnis, Héraðslýsingar, saga og ættfræði, Ævisögur og endurminningar og Handbækur. Hljóðbækur verða merktar sérstöku tákni.

Auk kynningartexta og myndar af kápu (eða höfundi)  birtist nafn bókar, höfundar, þýðanda þar sem við á, og útgefanda og greint er frá blaðsíðufjölda, leiðbeinandi útsöluverði (með vsk.) og ISBN númeri. Ekki er skylt að hafa mynd eða útsöluverð en hin atriðin verða að birtast. Bókum innan hvers flokks verður raðað í einfalda stafrófsröð titla.

Vegna útgefendaskrár aftast er beðið um nafn útgáfu, heimilsfang, póstfang, síma- og faxnúmer hjá þeim sem hafa, sömuleiðis netfang þeirra sem það hafa. Skilyrði fyrir birtingu bókakynninga og auglýsinga er að útgefendur hafi gert upp allar eldri skuldir við félagið.

Verð á kynningum og auglýsingum fást á skrifstofu.

Skilafrestir Kynningartextar og bókakápur þurfa að berast í allra síðasta lagi miðvikud. 21. okt. nk. Panta þarf auglýsingapláss sem fyrst og eigi síðar en 21. október við efnisskil og síðan þarf að skila auglýsingunum tilbúnum til prentunar í allra síðasta lagi 23. október.

ÞESSAR DAGSETNINGAR ERU EINDAGAR!